Þínir eigin GPS ferlar á map.is
Settu þína eigin GPS ferla á map.is. Nú er hægt að draga/sleppa (drag/drop) ferlum eða leiðum inn á www.map.is. Þegar þetta er gert teiknast leiðin ofan á kortið og nafnið bætist inn í listann hægra megin þar sem hægt er að fela ferilinn eða eyða út. Hægt er að setja inn fleiri en einn feril sem fá sjálfkrafa mismunandi liti. Ferlarnir þurfa að vera á KML eða GPX formi sem mörg forrit geta búið til. Ef þú vilt prófa hvernig þetta virkar eru hér slóðir á tvær skrá sem hægt er að sækja og draga inn á kortið