PERSÓNUVERNDARSTEFNA LOFTMYNDA EHF.

Loftmyndir ehf. (einnig vísað til sem „félagsins“) hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi þeirra persónuupplýsinga sem félagið vinnur með.

Persónuverndarstefna þessi gildir um þá vinnslu sem félagið hefur með höndum um umsækjendur um störf, notendur póstfangagrunns félagsins og þá einstaklinga sem eiga í viðskiptum við félagið. Þá á stefnan einnig við um vinnslu félagsins á tengiliðaupplýsingum forsvarsmanna viðskiptavina félagsins sem eru lögaðilar.

Tekið skal fram að félagið vinnur með ýmsar persónuupplýsingar fyrir hönd þriðju aðila, s.s. í tengslum við kortasjá sveitarfélaga. Í slíkum tilvikum kemur félagið oftast fram sem svokallaður vinnsluaðili í skilningi persónuverndarlaga og gildir persónuverndarstefna þessi ekki um slíka vinnslu.

Í persónuverndarstefnu þessari er jafnframt vísað sameiginlega til umsækjenda um störf, notenda póstfangagrunns, viðskiptavina félagsins og forsvarsmanna viðskiptavina félagsins sem „þín“ og félagsins sem „okkar“.

  1. Tilgangur og lagaskylda

Félagið leitast við að uppfylla í hvívetna persónuverndarlöggjöf og er stefna þessi byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“).

  1. Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar í skilningi stefnu þessarar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.

  1. Persónuupplýsingar sem félagið safnar og vinnur

Við kunnum að safna persónuupplýsingum um þig í tengslum við samskipti okkar og eftir atvikum samstarf. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað um ólíka aðila og kann vinnsla og söfnun á persónuupplýsingum að fara eftir eðli sambands þíns við félagið.

Viðskiptavinir: Í tengslum við viðskiptavini okkar sem eru einstaklingar vinnum við með upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang og upplýsingar um kaupsögu í því skyni að geta átt í samskiptum við viðkomandi, gefið út reikning og eftir atvikum sent keypta vöru til viðkomandi. Vinnsla þessi byggir því á samningi okkar við viðskiptavini.

Forsvarsmenn: Þegar viðskiptavinir okkar eru lögaðilar eru að baki þeim forsvarsmenn og starfsmenn sem við kunnum að vinna með persónuupplýsingar um. Slíkar persónuupplýsingar eru fyrst og fremst samskiptaupplýsingar, s.s. nafn, netfang, starfstitill og símanúmer. Tilgangurinn með vinnslunni er fyrst og fremst að geta átt í samskiptum við viðskiptavini og byggir vinnslan því á samningi. Félagið sendir forsvarsmönnum viðskiptavina sinna jafnframt jólakveðju og dagatal og í því samhengi er unnið með tengiliðaupplýsingar forsvarsmanna. Sú vinnsla byggir á lögmætum hagsmunum félagsins.

Notendur póstfangagrunns: Félagið heldur úti póstfangagrunni sem tekur til alls landsins. Í honum er unnið með upplýsingar um heimilisföng, póstnúmer og sveitafélaganöfn allra heimila á landinu. Unnið er með þessar upplýsingar á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins og er grunnurinn aðgengilegur almenningi.

Umsækjendur: Í þeim tilvikum er einstaklingar sækja um starf hjá félaginu er unnið með umsókn viðkomandi og aðrar þær upplýsingar sem umsækjendur kjósa að afhenda félaginu. Slík vinnsla byggir á samningi, þ.e. beiðni umsækjanda um að gera samning við félagið.

Að meginstefnu til aflar félagið persónuupplýsinga beint frá þeim einstaklingum sem unnið er með upplýsingar um.

  1. Miðlun til þriðju aðila

Félagið miðlar ekki upplýsingum til þriðju aðila, að því undanskyldu að utanaðkomandi aðilar veita félaginu hýsingarþjónustu. Félagið hefur gengið frá vinnslusamningum við þá aðila.

  1. Hvernig er öryggi persónuupplýsinga tryggt?

Félagið leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar, með sérstöku tilliti til eðlis þeirra. Dæmi um slíkar öryggisráðstafanir eru aðgangsstýringar að kerfum þar sem upplýsingar eru vistaðar og notkun eldveggja. Þá nýtist félagið jafnframt við dulkóðun í tilgreindum tilvikum og gætir að því að starfsmenn þess séu meðvitaðir um þær kröfur sem á þeim hvíla á grundvelli persónuverndarlaga. Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra.

  1. Varðveisla á persónuupplýsingum

Félagið varðveitir aðeins persónuupplýsingar um þig eins lengi og þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar.

  1. Réttindi þín hvað varðar þær persónuupplýsingar sem félagið vinnur

Þú átt rétt á að fá aðgang og í ákveðnum tilvikum afrit af þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig sem og upplýsingar um vinnsluna.

Við ákveðnar aðstæður kannt þú jafnframt að hafa heimild til að óska eftir því að persónuupplýsingum um þig verði eytt eða að vinnsla þeirra verði takmörkuð. Þá átt þú rétt á að fá persónuupplýsingar þínar leiðréttar, séu þær rangar eða óáreiðanlegar. Því er mikilvægt að þú tilkynnir okkur um allar breytingar sem kunna að verða á persónuupplýsingum þeim sem þú hefur látið okkur í té, á þeim tíma sem við á.

Auk þess kann að vera að þú eigir rétt á afriti af þeim upplýsingum sem þú hefur afhent okkur á tölvutæku formi, eða að við sendum þær beint til þriðja aðila.

Þegar við vinnum persónuupplýsingar þínar á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar getur þú andmælt þeirri vinnslu. Komi til þess að við vinnum með upplýsingar þínar á grundvelli samþykkis átt þú jafnframt alltaf rétt á að afturkalla slíkt samþykki.

Ofangreind réttindi þín eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög eða reglugerðir að heimila eða skylda félagið til að hafna beiðni þinni um að nýta þér umrædd réttindi. Réttur þinn til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna beinnar markaðssetningar er þó fortakslaus.

  1. Fyrirspurnir og kvörtun til Persónuverndar

Ef þú vilt nýta þér þau réttindi sem lýst er í 7. gr. í stefnu þessari, eða ef þú hefur einhverjar spurningar vegna persónuverndarstefnu þessarar eða það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við félagið sem mun leitast við að svara fyrirspurnum og leiðbeina þér um réttindi þín samkvæmt persónuverndarstefnu þessari.

Samskiptaupplýsingar félagsins eru eftirfarandi:

Loftmyndir ehf.

Kt.

Laugavegi

101 Reykjavík

loftmyndir@loftmyndir.is

Ef þú ert ósátt/ur við vinnslu félagsins á persónuupplýsingum getur þú sent erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

  1. Endurskoðun

Félagið getur frá einum tíma til annars breytt persónuverndarstefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar. Verði gerðar breytingar á persónuverndarstefnu þessari verður uppfærð útgáfa tilkynnt þér á sama hátt og stefna þessi var kynnt.

Allar breytingar sem kunna að verða gerðar á stefnunni taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt.

Þessari persónuverndarstefnu var síðast breytt þann 27. október 2020.